Jess, 3 dagar í frí


Þá fer Rebekka í frí, fer í leyndó "helgarferð" með Bergi og fær svo ríspáskaegg frá Freyju á sunnudaginn

Jeyjjj
Það eru 76 dagar (ef ég hef talið rétt) þangað til að við förum til Costa del Sol og ég er komin í átak núna, this time for real! Ætla að líta vel út í sólinni, ekki það að ég sé búin að fitna e-ð hehehe, en það er samt allt í lagi að grennast smá
17 dagar í Prag

Men það verður gaman!! Er búin að finna út hvar allar H&M eru, og hvaða fleiri búðir eru í þeim mollum

Það verður samt bara tekinn einn verslunardagur og aðallega versluð barnaföt

Vona bara að gengið fari að lækka!!
Við Ástarpungarnir vorum að passa fyrir Sæu og Hjört um helgina, fórum í bíó á Horton, góð mynd sko

Það gekk allt rosa vel nema þegar Kristjana klemmdi höndina á sér á meðan hún var sofandi og svo var hún bara vakandi eftir það og við sváfum nánast ekkert

En það var allt í lagi, vitum bara núna hvernig er að sjá um heimili og 2 börn og það er ekki e-ð sem við erum tilbúin til að gera á næstunni...

Svo í gær þá bónuðum við, Bergur og Snæi, bílinn minn, máluðum rúðuþurrkurnar svartar, Bergur setti ljós í mælaborðið og þarna þar sem gírarnir eru og í hitagaurinn... Núna er hann svaka flottur, bara verst að maður getur ekkert keyrt hann því bensínverðið er svo hátt
Til hamingju með 21 árs afmælið í gær Ása mín

Ég vona að þetta hafi verið góð helgi hjá ykkur skötuhjúunum í bústaðnum
B.t.w. msnið hjá mér er ennþá bilað en vinnumailið mitt er
rebekka@velar.is 
Heyrumst beibs